|
|
19.11.2008 11:36:34 / sveitaskvis
Já eins og fyrisögnin segir að þá er ég komin í jólaskap  .Enda orðið frekar stutt í jólin,krakkarnir eru svona aðeins farin að spá í að jólin séu að koma en ég hef nú ekki viljað tala of mikið um þetta við þau,enda svolítið langur tími fyrir krakka að biða. Við fórum sl Fimmtud til AK,fórum bara svona ganni að versla jólagjafir og hafa það gott. Alltaf gott að fara í svona ferð,krakkarnir voru alveg til fyrimyndar enda ekki við öðru að búast af svona frábærum börnum  Við fengum íbúð á AK sem við gistum í 3 næstur,við fórum svo í þetta fina jólahús sem var búið að segja okkur að fara í,jú jú þetta var allt voða fínt en ekki barnvænt finnst okkur,allavega vildi ég nú ekki vera að fara með þau þarna inn svona í allt þetta jóladót sem er verið að selja þarna.En þau fengu nú að segja húsið og fannst þeim það voðalega flott. Við ætluðum í sund en vegna þess hve börnin öll voru hóstandi og kvefuð var því slúttað um leið.Það verður bara að bíða betri tíma. En já ég náði að versla alveg heilar 6 jólagjafir ,ýkt sátt með það.Svo þetta er nú allt að koma.Enda var planið að eiga nú ekki mikið eftir að kaupa þegar við komum siður 22 des.Ekkert voðalega mikill tími þá til að versla jólagjafir. Mamma og pabbi ætla að skella sér til okkar næstu helgi og eru mikill spenningur í krökkunum að fá þau.Við gerum eflaust eitthvað skemmtilegt og verður amma dreginn með í íþróttahúsið og horfa á barnabörnin hvað þau eru orðin svakalega dugleg í íþróttahúsinu. Svo býst ég nú við að við skellum okkur í sund með þeim og höfum skemmtilega og notarlega helgi með þeim. Vegna þess hvað mislukkuð ég er að baka smákökur og svoleiðis gaf ég þá yfirlýsingu á þessum bæ að ég mundi ekki standa í neinu svoleiðis þetta árið,Hilmar ætlar því að taka þetta að sér og verður skemmtilegt að sjá hvernig það mun koma út.Hann reyndar sér um svo margt í eldhúsinu ,þegar ég er orðin arg og garg af pirring af því sem er að mislukkast hjá mér.  Ísaki Mána gengur bara súper vel í skólanum,farin að lesa og skrifa og reikna og allt bara svo flott hjá honum.Hann er reyndar með svolitið mikla fullkomnaáráttu,en það hlýtur að þroskast af honum og hann reyni að nota það rétt. Mikael Frey gengur mjög vel í leikskólanum og er fer hann alltaf sæll og glaður á leikskólann.Vinkona hans sem hann leikur mest við heitir Eva Katrín og honum finnst hún alveg æðisleg,og svo er það vinurinn hann Adam þeir eru voðalega góðir saman.Hann er ennþá alveg með æði fyrir að púsla mikið en þó aðeins komin líka í að lita og perla. Kristjana er ennþá mikil ráðskona og held ég að það sé ekkert að fara af henni.Hún vill stjórna öllu hér með harðri hendi ,en er ekki eins sátt þegar tekið er í taumana.En hún er virkilega klár og dugleg stelpa og eru þær konur á leikskólanum mjög ánægðar með hana og hrósa henni mikið. Svo eins og þið lesið að þá erum við með rosalega flott börn og erum rosalega stolt af þeim.
»
06.10.2008 10:07:54 / sveitaskvis
Sælt verið fólkið,jæja við skruppum suður á miðvikudagskvöldið,tókum flugið því við vorum nú ekki að nenna að aka í rúma 8 tíma fyrir svona stutta ferð.Flugið gékk bara nokkuð vel,daman hún Kristjana vildi helst vera svona á fleigi ferð en móðir hennar gafst ekki upp og hafið hún því viningin og sat því sú stutta alveg kjurr. Við vorum komin í rvk um hálf 10 og sótti foreldrar mínir okkur,fengum við lánaðann bílinn hans Magnúsar ,takk kærlega fyrir lánið á honum.Við fórum svo beint þar sem leiðin lá á hótelið,alveg sérlega fínt hótel og notarlegt.mælum sko alveg með því. Við mættum sko eldsnemma með Mikael á Talmeinastöðina.Hann fór þar í nokkur próf og kom þetta allt saman ágætlega út. Við vorum svo bara að heimsækja ættingja og vini.Hilmar minn átti svo afmæli 2 okt og fékk hann þennan flotta gítar frá mér. Við notuðum tíman aðeins í að versla föt á okkur og krakkana úti föt fyrir veturinn,svo við erum bara alveg tilbúin í veturinn. Fórum auðvita í sund og mikið finnst þeim krökkum gaman í sundi,fórum örugglega 50 ferðir í rennibrautina,svo dugleg þessi krakkar. En svo kom laugardagskvöld og þá fór hann Hilmar að hitta krakka sem hann var með í grunnskóla,voða gaman þar hjá honum.Ég mætti svo seinna um kvöldið og hitti hann.Leið okkar lá á FH ballið,ég tel að ég sé orðin elliær.Ég endist í held ég 40 mín á ballinu.Ferlega lélegt.Ég var bæði orðin þreytt og svo fannst mér svo ferlega hátt stillt í tónlistinni.Svo við gömlu skötuhjú skelltum okkur í leigubíl bara,fórum á dóminos og fengum okkur pítsu og fórum heim að sofa. Já ég tek því bara að við séum orðin gömul fyrir svona.Best að vera bara heima og hafa það huggulegt,en við sluppum þá við þynnku og þannig vesen. Við komum svo heim í gær og alltaf er nú gott að koma heim ,þótt það sé auðvita rosalega gaman að koma og hitta ættingja okkar.
»
07.09.2008 09:25:46 / sveitaskvis
Jæja mætt aftur að skrifa eitthvað aðeins.
VIð erum annars hress og kát hér fyrir austann,veðrið hér er búið að vera fínt,vonandi mætir veturinn ekki snemma.Er ekki alveg að nenna svona hörðum vetri eins og í fyrra. Annars gengur allt sinn vanagang hér.Ísak auðvita byrjaður í skóla og gengur það súper vel.Hann er 1 sinnu búin að koma heim með dýrindis gott brauð sem hann bakaði í heimilsfræði í skólanum og er svo að gera smjörhníf í smíði.Svo duglegur gaur.Honum finnst þetta allt saman mjög spennandi að byrja í skóla. Hann er voða spenntur núna því á morgun byrjar hann í skólasundi,enda mikill sundkarl. Mikael og Kristjana stunda leikskólann af miklum krafti og gengur það bara mjög vel.Mikael er voðalega glaður að hafa systur sína með sér. Ég hef því haft góðan tíma frá 9 - 2 að hafa alltaf fínt hér,já svo núna er alltaf allt voðalega hreint hér.Enda engin sem getur draslað hér út hahahaha.
Við skellum okkar svo á Akureyri eina helgina í okt.Versla jólagjafir og svona,enda við ætlum að vera hér þessi jól,við hlökkum bara til þess að prófa þetta. Ég er furðulega snemma í að byrja að kaupa búin að kaupa 3 gjafir.Ég sem alltaf er á seinustu stundu með allt að kaupa jólagjafir.En ætla semsagt að klára allt þegar við förum til ak.Svo Desember verður bara rólegur og ljúfur hjá okkur. En nóg um jólin enda meira en 3 mán í þau
Við erum svo að spá í eftir áramót að skella okkur kannski erlendis bara við 2,okkur finnst þetta voðalega ljúft að slaka smá á bara við 2,held að allir hafa gott af svoleiðis.Stefnan er að reyna að fara á fótboltaleik,það verður eflaust voðalega gaman. En þessi helgi núna er búin að vera bara fín,Hilmar vann reyndar allann laugard eða í 16 tíma, .En hann sefur núna til að vera hress með okkur í dag. Stefnan er sett á sund í dag og týna ber svona áður en fer að kólna meira.
Hum hum er ég að gleyma einhverju jú lét verða af því að kaupa flatskjá,hahaha við höfum aldrei átt svona og finnst okkur eins og við séum í bíó á hverjum kvöldi bara gaman.
En læt þetta duga í bili .
»
25.08.2008 20:39:49 / sveitaskvis
Jæja þetta haust byrjar öðruvísi en öll önnur,já "litli" stóri strákurinn minn er að hefja skólagöngu,mikið er þetta skrítið.Já hann fór sko með bros á vör í skólann í dag.Hann er búin að bíða lengi eftir þessum deigi. Hann mætti svo eftir skólann með 3 vini sína í dag,já já bara voða gaman hjá þeim félögum.Hann er sko alveg á því í vor skal hann verða orðin vel læs til að lesa fyrir okkur foreldrana. Hann ætlar svo að byrja í fótboltanum hjá Leikni í haust,hann hefur sko gott af því þessi mikli orkubolti.
En svo ég láti það nú fylgja með hvað við vorum að gera í sumar
NR1 Suður var haldið og þar var dvalið í 10 góða daga.Ég fór á svona hitting með grunnskólanum mínum,æðislegt gott það.Svo gaman að hitta fólkið eftir svona langan tíma.En svo vorum við að heimsækja vini og ættingja. Svo má ekki gleyma að afmæli Kristjönu og Ísaks var haldið í rvk ,heppnaðist það svona líka rosalega vel og allir mættu ,gott það.Svo nú eru þau 2 ára Kristjana og 6 ára Ísak Máni.Þetta er að verða fullorðið lið hjá mér. Þó svo að Mikael hafi ekki átt afmæli fékk hann sko helling af pökkum,þannig er það þegar maður er þetta ungur og er ekki alveg að fatta að þau 2 fá pakka en ekki hann.
NR2.Siðan lá leið okkar í Húsafell þar sem við dvöldum í 5 góða daga.Ég hafði aldrei komið þarna áður og fannst mér þetta svæði þarna alveg geggjað.Þarna fengum við bara mjög gott veður og höfðum það rosalega gott. Fengum heimsókn frá systur Hilmars henni Dísu og vakti það mikla lukku ,krakkarnir svo glöð að fá hana til sín,en já þarna höfðum við það svo gott.
NR3.Siðan lá leið okkar vestur ,nánar til tekið rétt hjá Hólmavík þar vorum við hjá mömmu og pabba í góðu yfirlæti.Alltaf svo gott að vera í sveitinni.Krakkar voru sko alveg að fíla þetta sveitalíf.
NR4 Lá leið okkar á vestfirðina ,Fórum á Tálknafjörð Bíldudal og Patró,svo fallegt þarna og alltaf jafn gaman að koma þarna.Hilmar hafði aldrei farið þarna áður og fannst okkur því upplagt að aka þanngað.Við vorum í æðislegri gistingu á Tálknafirði.Við gistum þar í 2 nætur og vorum því svo bara að skoða þessa alla fallegu staði. Ísak varð reyndar eftir hjá mömmu og pabba meðan við fórum í þessa ferð,hann var þar í góðu yfirlæti eins og alltaf hjá þeim.
NR5 næst lá leið aftur til mömmu og pabba rétt hjá Hólmavík þar var gist eina nótt og svo brunað í bæinn.Þar fengum við aftur íbúðina í ljósheimum ,Við fórum í bæinn út af leik FH Aston Villa.Mikið var þetta skemmtilegur leikur þótt úrslitin voru kannski ekki þau bestu.Enda kannski ekki við öðru að búast þegar FH fær þetta sterkt lið.
NR 6 .En svo var bara komið að heim för og við að sætta okkur við að sumarfríið sé búið.En allt tekur enda og erum við rosalega sátt með þetta góða frí sem við fengum.
Við munum reyndar ekkert mæta suður aftur fyrir en næsta sumar ,verða þetta því skrítin jól .En bara gaman að prófa jóla hér. Jæja þetta læt ég duga í bili.
Er að gleyma einu Kristjana prímadonna var að byrja á leikskóla.Mikið er hún glöð og sátt með þetta,og Mikael er það svo sannarlega líka,hann var hálf leiður því Ísak er auðvita ekki þar lengur.En þau leika sér mikið saman úti ,eru alveg flottust þarna.
»
28.06.2008 14:38:46 / sveitaskvis
Góðan dag ,það sem er að frétta af okkur sveitafólkinu er nú ekkert voðalega mikið,en held þó samt áfram að skrifa  Nú er alveg að koma júlí og veðrið hér er eins og það sé okt,skil ekkert í þessu.Ég vil fá sól og svolítinn hita.En við komum 25 júlí og þá æltar kellann að hitta stelpurnar sem voru með mér í 10 bekk í grunnskóla,það verður örugglega rosalega gaman.Er svo að fara næstu helgi að hitta krakkana sem voru með mér í Hússtjórnarskólanum,10 ár síðan við hittumst ,jí jí jí hvað verður nú gaman, Ísak Máni er útskrifaður alveg úr leikskólanum,svo skrítið að litla barnið mitt sé að fara í 6 ára bekk,mér finnst þetta stórt stökk,en svona líður tíminn áfram en ég eldist ekkert,meina þegar það er sagt við ísak að hann eigi unglingamúttu  Ég verð allavega yngsta mamman í 6 ára bekknum,það er bara alveg ágætt. Mikkalingur er alveg orðinn snillingur í að hjóla og hjóla svo duglegur þessi gaur.Hann vill sko fara upp og niður brekku,En á eftir að læra að bremsa alveg í brekku .Hann er samt voðalega fyndin með það að þegar það er rok eða rigning vill hann ekki sjá að fara út,hann er svolítill inni köttur,annað en Ísak sem er úti frá morgni til kvölds. Kristjana fékk loksins langþráð þríhjól,mikið var hún glöð.hjólið er með svona stöng sem ég get þá ýtt henni.Svo þessa dagana erum við mikið úti að hjóla og hjóla. Litla barnið mitt er svo að verða 2 ára í næstu viku.Fjúkk hún var að fæðast og bara allt í einu 2 ára,já tíminn líður sko hratt Við mætum svo í borgina 25 júlí og verðum þar í 10 daga.Við ætlum að reyna að hitta sem flesta ,svo ef þú lesandi góður langar að hitta okkur þá er bara að bjalla í okkur.
»
07.05.2008 14:41:01 / sveitaskvis
Jæja kæru vinir. Af okkur sveitafólkinu er allt gott að frétta.Ég held barasta að sumarið sé komið,allavega vorið .Ídag og gær er búið að vera yndislegt veður.Vonandi verður þetta svona bara áfram.En sá svo spánna áðan og það á að fara snjóa á fimmtud.usss.Vil ekki sjá meira af þessum blessaða snjó.Hann má koma aftur 24 des nk. En krakkarnir okkar dafna vel hér.Ísak er mest úti þessa dagana,kemur inn til að borða og klósetttið hahaha.Svo hann er orðinn brúinn og sætur,eins og alltaf. Hann er sko farin að hlakka til að koma suður í sumar að hitta alla ættignja sína og vini.Hann er semsagt í því að hjóla og hjóla og verður aldrei þreyttur.Alveg ýkt duglegur drengur. Af Mikkiling er að frétta að hann púslar og púslar  svo duglegur þetta barn.En hann er líka mikið úti og við öll.Fórum í fyrradag í lautarferð og var það bara rosalega gaman.Þeim finnst æði að fara í svona nestisferð.Svo við bara skelltum teppi í tösku og góðu nesti og svo var bara haldið í göngu.Alveg yndislegt. Mikael er mikið í því þessa dagana að allt er ótrúlega flott og allt svo ótrúlegt hahahah. Kristjana er hér enda prinsessa með meiru.Við förum alltaf eftir að við höfum farið með gaurna á leikskólann,í góðan göngutúr og fer hún Ingibjörg kunningja kona mín stundum með okkur.Svo yndislegt að ganga.Svo er Kristjana farin að tala og tala.Kemur nýtt orð á hverjum deigi.Mest segir hún hvar er pabbi.Hún er sko orðin frekar mikil pabba stelpa.Bara gaman af því. Svo er hvítasunnan næstu helgi og verð ég svona næstum ein eða þannig ekki Hilmar.Hann vinnur um nóttina og sefur svo á daginn.En við ætlum að gera heilmikið fara í göngutúr og svo kannski sund þegar Hilmar vaknar á daginn. En ætla að láta þetta duga í bili þar sem Mikael vill fá mig strax og horfa á sig púsla hahahha.
»
26.04.2008 22:16:47 / sveitaskvis
Jæja góða kvöldið kæru vinir.
Það sem hefur á daga okkar drifið er svo sum ekki mikið síðan seinast,en skrifa þó eitthvað hér. Humm planið var að fara suður 23 maí og vera í 3 dag,en þvi miður verður ekkert af því þar sem hann Hilmar minn hefur tekið að sér vakt í Álverinu og verður hann á næturvakt þessa helgina . En við mætum bara fersk 24 júlí. Þá ætlum við í sumarfrí fjölskyldan,ekki það að gaurar fara í frí 15 júlí eða væntanlega eitthvað fyrr.Við ætlum bara að gera heilmikið saman meðan Hilmar vinnur,svo margt hægt að finna sér hér í sumar.Ísak Máni er að spá að skella sér á leikjanámskeið hér,held að orkuboltinn hafi gott af því Talandi um veður,jú jú fengum voðalega gott veður í sl viku en þessi vika hefur nú ekki verið voðalega góð,hvað veður varðar.Einmitt núna er mikið rok og skítakuldi.Svo var ég að skoða spánna fyrir næstu viku og það er bara spáð hér snjókomu Ég er alveg búin að fá nóg af þessum snjó sem hefur verið ansi tíður gestur hér fyrir austann. En nóg um veður,af Kristjönu er gott að frétta alltaf eitthvað að bætast í orðaforðann hennar.Þessi dama er kraftmikil og rosalega dugleg og lætur engann segja sér fyrir verkum Hún er mikið að reyna á okkur þessa dagnana hvað hún kemst langt,til þess nú að barnið verði ekki frekjudolla þá verður maður bara að vera harður,þótt það sé nú ekki alltaf gaman.Við förum helling saman út þegar gaurar eru á leikskólanum og náum í þá næstum alltaf gangandi. Af Mikkaling er að frétta að hann er bara endalaust í því að púsla og púsla .Hann er orðinn gott sem altalandi svo duglegur gaur.En já hann er að púsla púsl sem er fyrir 5 ára gaura,og hann er nú bara 3 ára,svo við erum voðalega montinn af honum.
Við höfum verið að fara mikið í sund þessa dagana,enda búið að opna rennibrautar hér fyrir austann,já opna spés hér er sko lokaðar rennibrautar yfir veturinn.Hef aldrei heyrt annað eins .Furðulegt finnst okkur að það sé verið að gera þessar líka flottur 3 rennibrautar og hafa þær svo opnar í 4 mán á ári. En við allavega notum sundlauginn óspart núna,og ég get sagt ykkur að þetta er kannski ekkert svo afslöppunarferð en alveg ýkt gaman með þeim.Það er sko farið svona 100 sinnum í rennibrautina,enda þykir þeim öllum hún æði,já það eru sko 3 ein svona akkúrat fín fyrir Kristjönu,maður þarf að hafa sig allann við ,því leið og hún hefur farið eina bunu þá vill hún fara aðra og það STRAX. kona á ferð sem veit hvað hún vill. Þeir gaurar vilja nú fara í aðeins stærri braut.Þá er ein sem er svona aðeins stærri og svo stæðsta sem hann Mikael rennur sér í eins og ofurkappi. Þau öll eru rosalega miklir sundgarpar og henda sér út í og kafa og kafa.Yndislegt að vera með þeim í sundi.
En lælt þetta blogg duga í bili.
»
15.04.2008 17:10:55 / sveitaskvis
jæja tek mig til og skrifa svolítið blogg af þessari jú frábæru ferð okkar.
Við lögðum af stað á miðvikud seinni partinn suður í rvk.Hum það var svo sum ágætt þótt krökkunum hafi ekki fundist þetta neitt æðislega gaman að aka svona langt.en jæja við vorum komin í bæinn um 10 um kvöldið.Þá var farið í smá kaffi til múttu og svo bara í Ljósheimana þar sem við vorum með íbúð á leigu yfir nóttina. Jæja næsta morgun var vaknað frekar snemma,enda nóg að gera áður en haldið var út á völl.Við Hilmar skelltum okkur í klippingu og ég skellti mér bara í strípur líka  vera fín og sæt hahahaha.En svo skellti ég mér aðeins í smáralind,Svo var farið með krakkana til mömmu í pössun.Dísa frænka þeirra ætlaði svo að ná í Mikka og Kristjönu þar.Svo var haldið út á völl  Já á völlinn vorum við komin rétt fyrir 2.Þá var bara að inrita sig og vonast til að vera ekki tekin í tollinum nei djók.  En við vorum svo bara í rólegheitum að drekka bjór og hafa það nice. Svo var auðvita bara flugvélin sem tók þetta venjulega næstum 3 tíma.Við vorum þá komin á hótelið um 22.Við skelltum okkur eftir það út að borða.Svo fljótlega fórum við upp á hótel að sofa,ég frekar þreytt,enda há aldraðir 3 barna foreldrar þar á ferð  En við tókum svo daginn snemma daginn eftir.Vorum mætt í lestina um 10 leytið .Ferðin var haldið á enska leikvanginn nýja.Við fórum í skoðunarferð þar og var það um 2 tímar.Rosalega flottur völlur og vonum við að við getum bara farið á leik þar einhvern tíman.Svo var farið aðeins svona smá að skoða í búðir.Keypti mér skó þvi ég var komin með rosalegt hælsæri og sá að ef ég mundi ekki versla mér skó mundi ég lítið geta verið að ganga.En um kvöldið voru það tónleikar,mikið var það gaman,en mjög hátt var það stillt  En semsagt frábært kvöld.fórum svo á nokkra bari og fengum okkur öl.Barir loka frekar snemma þarna miða við okkur hér heima eða kl 1. Við vorum komin heim um 2 enda fólk sem þarf að fara að sofa snemma enda orðin frekar gömul. Lagardagur fórum við í london hjólið svona útsýnishjól.Það var alveg frábært.Svo gaman að sjá svona yfir allt.Svo eftir það var farið að versla ,já það var verslað slatti.Verslaði mest á krakkana en jú þó nokkuð á okkur líka.Missti mig alveg íp H&m og Gap.Svo gaman að versla.Verslaði svo í þessari skemmtilegu dótabúð á 5 hæðum,já margt hægt að versla þar skemmtilegt. Svo var auðvita alltaf farið á góða veitingastaði.Fengið sér gott að borða  Svo á sunnud þá var svona rólegur dagur kíktum á útimarkaði.humm alveg furðulegt að það var sko held ég bara dýrara á þessum mörkuðum en í verslunum á oxford.En samt voðalega gaman.Svona eins og að koma á tímabilið 1980  Bara gaman En svo rann upp að við værum að fara heim.Við vorum komin á völlinn rúmlega 18 00.Við skoðuðum þar og slöppuðum af.Vorum komin í vélina 21.já þá var sagt seinkun vegna miklar umferðar á vellinum.Svo við biðum í vélinni í rúmlega klukkutíma þar til við fórum í loftið. Lentum í kefl rúmlega 12 og var þá haldið heim til múttu.Mikið var gaman að hitta krakkana um morguninn.Alveg yndislegt alltaf að koma heim. Er að spá að henda í kvöld inn myndum af ferðinni  Svo biðið spennt eftir skemmtilegum myndum.
»
27.03.2008 12:53:45 / sveitaskvis
Jæja er mætt aftur,eftir páskafrí,humm hvað er það.Missti ég alveg af því.Já ég held það bara,ég var ælandi og spúandi upp og niðurgangur.Hef aldrei lent í öðru eins.já þetta var ekki gaman .
En nóg af þessu helvítist kvarti og kveini,það eiga sveitamenn ekki að gera,ekki það að ég sé farin að líta á mig sem sveita eitthvað.En annars er bara gott af okkur að frétta. Baldur frændi eignaðist fallegan dreng 19 mars og óska ég honum og þeirra fjölskyldu auðvita til lukku með hann.Frábært að bæta fleiri börnum í hópinn.
Ísak Máni átti góða stund hjá mömmu og pabba,hann var þar í viku.Hann skemmti sér konunglega,fékk að aka traktór,ég er lítið spurð af því hvort það meigi hehehhehe.En Magnús bróðir var alveg rosalega duglegur að leyfa honum að vera með í öllu.Takk Magnús minn. Hann vildi nú ekkert frekar koma heim Mömmu hjartað alveg brotnaði við að heyra það.En auðvita var kúturinn glaður að sjá okkur öll.Enda ekki nema 14 dagar í að hann fari aftur suður ,eða við öll auðvita.Vegna London ferðar okkar.
Mikael og Kristjana áttu auðvita góða páska hér.Dísa frænka þeirra koma á Miðvikud fyrir skírdag og var hér til Laugard.Það var heilmikið gert meðal annars sund og skoðað heilmikið hér.Breiðdalsvík og fleira.Mikael er með æði núna fyrir honum Klossa sem er Dóru þáttunum.Hann fær svona æði fyrir hinu og þessu.En hann gleymir nú ekki Latabæjarkarlinum sínum,hann sefur alltaf með hann líka. Kristjana hefur mest gaman af því að stríða bræðrum sínum,enda tekst henni það vel já það er ekki annað hægt en að brosa og hlæja þegar hún tekur sig til.Hún á það til að rífa bókina eða eitthvað sem Mikael er að skoða og hefur hann þá verið búinn að koma sér vel fyrir í sófanum.Hún hleypur um allt með þetta og hann á eftir og svo passar h ún sig á því að henda þessu eitthvað langt.Hún er rosaleg þess elska.En hún er rosalega dugleg og ef hún ætlar sér eitthvað gerir hún það.Semsagt hefur hún fengið svolítið af frekju En þau er nú líka oft rosalega góð að leika sér öll saman. Læt þetta duga í bili.
»
15.03.2008 12:53:53 / sveitaskvis
Jæja þarf að byrja fyrst á því að skamma ykkur smá Ég er að skrifa og skrifa og varla fæ ég comment.Ég vænti þess að þið kvittið fyrir innlit .Svo ég gefist ekki upp á að skrifa hér. En það sem er að frétta af okkur núna,er að hér eru að koma páskar eins og allstaðar á landinu.Svo núna eru bara 3 dagar í að stóra barnið mitt skelli sér aleinn í flugvél,úff púff.En hann á eftir að standa sig eflaust rosalega vel. Ég er að vona að hér fari að hlýna eitthvað,endalaus skítakuldi,vil fara að fá hita og sól.Eða jú hún sést nú stundum hér sólin,en samt frost og bara ískalt.(
En nóg af kvarti og kveini.Mikael hefur ekki alltaf geta sagt R,svo bara í fyrradag þá kom þetta og hefur hann verið mikið í því að segja RRRRrr.Rosalega duglegur gaur.Hann er rosalega glaður á leikskólanum,en hann er svona þessi týpa að vilja bara leika sér einn.En leikur þó við Ísak stundum í útiveru.Hann fær þetta að vera svona einfari frá föður sínum.Hann var víst svona sem barn.Enda gott að börn geti líka leikið sér ein.Ég er að hugsa um að fara með hann í fyrstu klippinguna í næstu viku,já þið eruð að lesa rétt fyrstu klippinguna,og barnið orðið rúmlega 3 ára.Svona eru börnin mín þurfa ekkert að fara í klippingu fyrir en um 3 ára aldur.En nú er svona komin smá lubbi á hann svo held það sé ágætt að fara með hann núna. Af gaurnum honum Ísaki Mána er allt gott að frétta.Hann bíður bara spenntur eftir því að skólinn byrji.Hann er farinn að skrifa og lesa svolítið,rosalega duglegur strákur.Hann ætlar svo að fara á leikjanámskeið sem eru hér í sumar.Ætla leyfa honum að taka viku í þannig námskeið.Bara gaman fyrir hann. Hann er líka voðalega spenntur að flytja í Hafnarfjörð þótt það sé reyndar ekki fyrir en eftir rúmt ár.Hann saknar allra mikið,en honum líður samt mjög vel hér. Af skottunni henni Kristjönu er að frétta bara mjög gott.Hún er samt held ég að gera út af við bræður hennar.Gerir lítið annað en að stríða þeim svolítið .Húnhefur sko gaman af því og hleypur svo hratt inn í herbergið sitt .Hún er alltaf að tala og tala meira og meir.Við tókum það þannig að fresta aðeins leikskólagöngu hennar þar til í haust.Enda að koma sumar og svona ,vonandi kemur sumar hér hehehhe.
En af okkur hjónaleysum er bara gott.Geðveikt að gera hjá Hilmari svo hann er lítið heima þessa dagana.En ætlar að taka sér gott páskafrí,svo við krakkarnir getum hlakkað til þess að fá að hafa hann hjá okkur Svo verður bara stuð að komast til London. Læt þetta gott í bili hjá okkur
»
07.02.2008 15:25:47 / sveitaskvis
sorrý að sl blogg kom allt í svona í einni bunu átti að vera greinarskil en það kom ekki
»
07.02.2008 15:22:57 / sveitaskvis
Já hér er búið að snjóa og snjóa og snjóa,annars segir fólk hér að þetta sé nú ekki það mesta sem sést hér en okkur borgarfólkinu finnst þetta bara alveg nóg og meira en þaðJ.En af okkur er allt gott að frétta,allir hér hress og kátir. Í sl viku voru gaurar bara í fríi eitthvað af þeim dögum vegna veðurs,já við bara komumst ekkert út og hvað þá að reyna að koma bílnum úr sporum,þegar við varla gátum gengið úti .En það var bara notarlegt að vera heima við og föndra og hafa það notarlegt,sofa fram eftir og bara horfa á veðrið út um gluggann ).Svo einn daginn var veðrið það líka slæmt að ég komst ekkert í búðina svo ég beið eftir Hilmari og hann semsagt gékk í búðina því bílinn komast ekkert fet ,humm get nú ekki sagt að það hafi verið gaman að senda hann út í þetta veður,en fólk hér er elskulegt og tók hann upp í bílinn svo hann þurfti nú ekki mikið að vera út í vonda veðrinu. Svo er nú bara að verða gestagangur hér ,næstu helgi ætla foreldar mínir að mæta til okkar og verður það mjög gaman.Alltaf gaman að fá heimsókn.Helgina eftir ætla svo systir mín hún Sigríður að mæta og tekur hún frænku okkar með hana Þórhildi.Já það líður ekki langt á milli komur hjá henni Sigríði bara mánuður á milli enda finnst henni gaman að koma og okkur að fá hana.Svo helgina eftir að þær hafa verið hér ætlar hún Dísa frænka þeirra að mæta og vonandi Didda amma þeirra.Svo það er bara skemmtileg heit á næsta leyti. Við munum svo bara eftir öll reyna að gera okkar besta til að skemmta þeim hér,það ætti nú ekki að vera vandamál. Svo var nú Öskudagur hér í gær eins og allstaðar annarstaðar á landinu,fóru þeir bræður klæddir sem Spiderman bræður.Flottir bræður þar á ferð.En eins og þeim sæmir ,kom smá vandamál hjá þeim áður en halda átti í leikskólann.Mikael harðneitaði að fara í spiderman búninginn og vildi bara fara í spiderman náttfötin og auðvita leyfði móðir hans það,en ekki hvað.En það var nú ekki allt komið þá ,Ísak var fyrst á því að vera Turtles,en var svo bara ekkert á því að vera það þegar halda átti af stað,svo hann breytti og vildi fara í spiderman búning sinn.Enda þeirra val að ráða hvað þeir vilja vera.Svo þeir fóru sáttir og glaðir á leikskólann.Kristjana var heima með mér þennan dag eins og aðra daga ,en auðvita fékk hún búning eins og sannri prinsessu sæmir.Hún fékk englabúning,hún var alveg rosalega sátt með þetta og dansaði hér og hafði gaman af . Við ætlum að vera heima þessa páska svo bara ef þið viljið koma austur þá erum við heimaJtökum auðvita vel á móti öllum og höfum gaman af að fá gesti til okkar.Við mætum næst suður í maí .En læt þetta gott í biliFarið vel með ykkur
»
21.01.2008 22:19:34 / sveitaskvis
já þá er þessi fína helgi að baki.Sigríður systir mætti og var það alveg frábært að fá hana til okkar í sveitina.Krökkunum fannst mjög gaman að fá hana,enda frábær stelpa Við gerðum eitthvað saman,þrátt fyrir leiðinlegt veður,þá er líka gott að kúra inni yfir skemmtilegri mynd voða notarlegt.En allavega skrapp Sigríður með Ísak Mána á þotu,enda barnið að "bilast" að vera svona mikið inni,enda hann lítið búin að vera úti eftir uppskurðinn.Haldið þið ekki að barnið hafi slasað sig ,jú jú minn maður bara komin með risa skurð á hökuna,jú við Sigríður og hann förum á Reyðafjörð og læknirinn saumar þetta saman 9 spor takk fyrir.Hann stóð sig auðvita eins og hetja,fannst auðvita ekki gott þegar verið var að sprauta í hann deyfingu,en ekkert mál að láta sauma sig súper duglegur strákur. Kristjana er farin að tala alveg heilmikið ,og setningar líka svo dugleg þessi stelpa.Hún er svipað dugleg eins og hún er mikið frek,eða eins og sumir segja hún er bara svo áhveðinn,kannski er það bara svona fínna orð yfir frek En hún er virkilega dugleg stelpa,henni finnst æði að fara út á þotu og láta draga sig,en þá er líka best að vera ekkert að drolla við það hún vill fara hratt sko. Já 3 dagar í mikka afmæli hann er búin að fá 1 pakka frá ömmu og afa í kópavogi fékk þennan fína snjógalla,hann voðalega sáttur.Við ætlum að halda afmæli fyrir hann næstu helgi,já við getum það alveg þótt við séum bara við fjölskyldan Svo fær hann auðvita veislu í leikskólanum sínum,með sínum vinum Ég hef mikið verið að pirra mig af einu sl daga og vikur já pirra mig er ég að segja.Það er þannig hér í sveitinni að fólk sem kemur í heimsókn eða er að bakna það bankar og opnar bara hurðina og kemur inn,mér finnst þetta mikill dónaskapur,eða að ég sé bara svona mikið borgarbarn ,allavega vil ég að fólk bara banki og bíði þar til einhver opnar,ef maður opnar ekki er maður ekki heima.Sveitamennskan er mikil hér sko Margt hér sem er svo ólíkt sem er í bænum,maður þarf sko ekkert að fara til útlanda til að fá aðra "menningu" og "siði".En margt er nú gott hér líka,hér er rólegt og friðsælt að vera.Yndislegt að vera með börn,enda fíla gaurar mínir þetta í botn. En læt þetta gott að sinni.
»
18.01.2008 02:43:50 / sveitaskvis
Já maður er að reyna standa sig í því að blogga Allt gengur sinn vana gang hér.Allt komið í eðlilegar skorður hér Það er að segja Ísak komin aftur á leikskólan eftir botnlangatöku,hann fór fyrsta daginn á Miðvikud,gengur bara súper vel.Það voru teknir saumar hjá honum á þriðjud og var hann auðvita rosalega duglegur,eins og hann er búin að vera í öllu þessu. Já vegna þess að hann var heima hjá mér á þriðjud kom hann með okkur Kristjönu á mömmumorgna,humm get ekki sagt að barnið hafi fílað þetta mikið.Barnið var mikið að segja konunum þarna að hann væri á kerlinamorgnum,humm hvaðan hefur barnið það.En annars var þetta nú alveg í góðu lægi,en hann sagði nú samt þegar hann kom út í bíl,að hann væri sko ekki til í að mæta á svona,hann sagðist ekki nenna að sitja með konum og þær sko bara tala og tala.Erum við að tala um karlrembu eða hvað  Já þið furðið ykkur á hvað ég skrifa hér seinnt að nóttu,ég nefnilega asnaðist til að leggja mig með Kristjönu smá í morgun,má það greynilega ekki þannig að ég lá andvaka upp í rúmi,nennti ekki að hanga þar lengur svo ég fór og setti í vel og braut saman þvott,humm já ekki það sem ég geri yfirleitt á nóttunni,en er svona eitthvað að reyna að þreyta mig.Muna passa mig á því að vera ekki að sofa svona á daginn,þetta fer alveg með allt hjá mér En svo er Sigríður systir mín að mæta til okkar á morgun,það verður sko gaman.gaurar mikið spenntir að fá hana.Við munum gera eitthvað skemmtilegt saman þessa helgina. já svo eru að koma 3 ár síðan að hann elskulegi Mikki minn mætt í þennan heim,já tíminn er sko fljótur að líða.Bara vika í afmælið hans.Sem segir mér að fyrir 3 árum í dag var þetta settur fæðingardagur Þannig að við vorum sko farin að bíða eftir honum. Við Hilmar erum eitthvað að skoða að skella okkur til London annað hvort í vor eða haust,bara við 2 held við höfum bara gott af því.Þótt það verði eflaust skritið að vera ekki með krökkunum okkar.En þau verða í góðum höndum,svo það er ekki málið.Við erum þá að spá að skella okkur á Liverpool leik,Hilmar og aðrir sem hafa farið á leiki segja að þetta sé þvílík upplifum ,og ég bara verð að fá að upplifa þetta.Efast ekki um að þetta verði gaman. En ætli það sé nú ekki best fyrir mig að reyna að sofna.Svo ég verði vakandi á morgun hehhehe.Svo ég læt þetta stutta blogg duga í bili.Skrifa svo eitthvað skemmtilegt hér eftir helgi. Farið þið vel með ykkur
»
Síður: 1 2 3
|
|